18.05.2006 | Óhlutdrægni þeirra hlutdrægustu

 

Á tímum þar sem allir eiga að heita hlutdrægir, allir hafa einhverra peningalegra hagsmuna að gæta, eða hér um bil, er gaman að sjá efni frá þeim aðilum er fólk horfir hvað illgjörnustum augum á, sakar um hlutdrægni og sjúkdómsvæðingu, og sjá að það sem þeir eru að gefa út á riti er hreint ekki neitt hlutdrægt. Þvert á móti; hvatt er til notkunar aðferða sem eru útgefendunum ekki í hag. Hér er ég að sjálfsögðu að tala um lyfjafyrirtækin.

Það vildi svo til, að um daginn rakst ég á tvo bæklinga, annan um kvíða og hinn um svefn og svefntruflanir, báða gefna út af sama lyfjafyrirtækinu. Deila má um, hvort hagsmunaaðilar eins og lyfjafyrirtæki eigi yfir höfuð að gefa út bæklinga um þetta efni, en látum það liggja á milli hluta.

Bæklingarnir, sem Delta h.f. - nú Actavis Group h.f. - gaf út í maí 2003, fjalla á hlutlausan hátt um kvíða og ráð gegn honum, og svefn og svefntruflanir og ráð gegn þeim. Ég er þó enginn sérfræðingur um þessi mál, og takmarkast mat mitt við það að ég hef umtalsverða þekkingu á kvíða, en frekar litla þekkingu á svefntruflunum. Bæklingarnir mæla einkum með hlutum sem sálfræðingar mæla með, svo sem að mæta kvíða og leyfa honum að minnka. Minnsti hluti bæklinganna fjallar um lyf, meira að segja er bent á að lyf leysa engan vanda, heldur þvert á móti, geti þau aukið á vandann. Eru það mjög mikilvæg skilaboð til fólks; lyf eru ekki töfralausn.

Bæklingarnir eru vandaðir, vel orðaðir og auðskildir, og verandi þar að auki hlutlausir, þá eru þeir góðir. Það má auðvitað deila um hvort nota eigi lyf til að takast á við vandamál eins og kvíða og svefntruflanir, en það er ekki rætt í bæklingunum, því að þeir fjalla auðvitað um þær aðferðir sem eru hvað mest notaðar í dag. Hins vegar má ekki gleyma að þessi vandamál eru af misjöfnum styrkleika - þau eru misalvarleg, og því er ljóst að hafi ákveðinn einstaklingur upplifað þessi vandamál af miklum krafti, og þarf ekki lyf, þá getur annar einstaklingur upplifað þau af enn meiri krafti, og getur honum virkilega gagnast lyf. Lyfin geta hæglega komið í veg fyrir enn frekari vandamál, og hví þá ekki að nota þau? Það þarf að sjálfsögðu að nota þau rétt.

Ég vil raunar taka það fram, að sjálfur er ég ekkert sérlega hrifinn af lyfjum og vil helst komast hjá notkun þeirra ef ég get. Ég leita annarra leiða í þeim málum og nýti þær, ef hægt er. Ég er einnig hluthafi í Actavis, þó ég sé ekki hrifinn af lyfjum, en ég keypti bréf í fyrirtækinu vegna þess að ég tel fyrirtækið traust og að framtíð þess sé einnig traust.

Uppfært í júní 2008: Ég á nú engan hlut í Actavis, fyrirtækið var tekið yfir í júlí 2007 af Novator - fjárfestingafélagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Skoðun mín á þessum bæklingum er óbreytt. Ég er enn á þeirri skoðun að lyf séu eitthvað sem ber að forðast að nota, eins og þegar ég skrifaði pistilinn.